
Kynjaverur
Náðrani(Aecor Avis) er spendýr sem á rætur sínar að rekja til Galápagos eyja. Hann lifir bæði í sjó, landi og á himnum. Hann er kallaður verndari manna, hvert dýr velur sér einn mann til að þjóna og vernda allt sitt líf. Fyrsti náðraninn sást 3500 árum fyrir Krist í Lakeba. Þegar dýrið klekst út er það um þriggja metra langt, fullvaxið dýr er 6 metra langt með 5 metra vænghaf. Oftast eru dýrin grá eða brún að lit. Sagt er að náðraninn sé afkvæmi aranea piscis sem er blanda kóngulóar og fisks sem Pelphedan ættbálkurinn í Afríku trúði á, og bos plaudo sem er vængjaður fíll úr goðsögum Faleghade ættbálksins í Sýrlandi.
Náðraninn hefur langan sporð skreyttan litskrúðugum fjöðrum. Upp sporðinn hefur hann loðinn kamb sem er oftast fjólublár, grár eða brúnn. Vængir dýrsins eru feiknarstórir, efri hliðin er mjög loðin og hefur karldýrið bleika, gráa, hvíta og svarta vængi en konan hefur gula og brúna. Hin hlið dýrsins einkennist af mjúkum feldi sem eru í jarðlitum hjá báðum kynjum. Vængirnir eru mjög flekkóttir og mætti segja að þeir líkist að hluta til minkafeldi á einni hlið og kindaull á hinni. Náðrani hefur langan háls sem líkist hestahálsi. Á höfðinu hefur hann fimm stór augu. Augun eru algjörlega tóm á daginn og hefur dýrið engan augnlit. Þegar dimmir vera augun rauð og sjálflýsandi og lýsa mönnunum leið í myrkrinu. augun fimm erfði dýrið frá aranea piscis, og eru þau eru hálfgerð kóngulóaaugu.
Dýrið hefur rana, skögultennur og eyru sem allt erfði það frá bos plaudo sem var hálfur fíll. Á milli eyrnanna er svo höfuð refs en það var ekki alltaf þannig og er merkileg saga á bak við það. Fyrsti náðraninn flutti frá Galápagos til Indlands ásamt Rasteen Khanee sem var eini íbúinn þar á þeim tíma. Þeir mættu mönnum Igors rauða sem voru svokallaðar alætur, borðuðu bæði menn og dýr. Menn Igors klæddust lendaskýlum úr refaskinni. Þeir réðust á Rasteen Khanee og náðrana hans og ætluðu að éta þá lifandi. Þar sem náðraninn er verndari faldi hann Rasteen í feldi vængja sinna meðan hann barðist við Khaleeds og menn hans. Náðraninn krækti rana sínum utan um háls allra mannanna og kæfði þá til dauða. Að því loknu tók náðraninn lendaskýluna af Khanne og batt hana um höfuð sér sem heiðursmerki um sigur í bardaga. Öll afkvæmi náðrana hafa svo kakist út með lítið refahöfuð milli eyrna sinna. Frá og með þessum degi bjuggu náðranar aðallega á Indlandi.
Náðranar verpir eggjum eins og flestir fuglar og eru það ávallt 121 egg sem hvert dýr verpir í einu því gert er ráð fyrir því að helmingur þeirra muni ekki lifa af. Náðranar fjölga sér mjög hratt og meðal dýr eignast 27830 afkvæmi í lífi sínu. Lífslíkur hvers dýrs eru 230 ár því hvert dýr þarf að lifa lengur en maðurinn sem það á að vernda. Náðranar eru afskaplega skotheldir en veikleikar þeirra eru lemúrstennur sem þær eru þeim algjörlega bannvænar. Dýrin er sögð hafa dáið út þegar þau fluttu öll til Madagaskar þar sem óð hjörð lemúra tóku glorsoltnir á móti þeim. Eftir dauða dýranna urðu mennirnir óöruggari og hræddari því þau höfðu þá enga verndara og þurftu að vera sjálfstæðir. Þeir sem finna fyrir einkennum óöryggis og einmanaleika hafa þá ekki átt forfeður sem áttu náðrana.
Náðrani var ekki aðeins verndari manna heldur hafði hann eitt annað hlutverk og var það að útrúma geitungum, en því miður tókst þeim ekki að útrýma þeim öllum. Það boðar gott að dreyma náðrana. Hann táknar hamingju, vellíðan og fyrst og fremst öryggi í framtíðinni. Hann tryggir að þú verðir aldrei einn og hafir ávallt einhver til að hugsa um þig og elska. Rasteen Khanee lést þegar sonur hans Absolvo var aðeins 3 mánaða gamall og náðraninn varð svo verndari Absolvo. Absolvo merkir öryggi á letnesku og varð drengurinn einn hamingjusamasti og öruggasti drengur sem hefur lifað á þessari jörðu. Hann stofnaði munaðarleysingjahælið á Indlandi þar sem hvert og eitt barn fékk sinn eigin náðrana sem verndara og leið þeim ávallt vel.