top of page

Kynjaverur
Centaur(Kentári)
Kentári er skepna í grískri goðafræði sem er maður niður að nafla, en hestur að öllu öðru leyti. Heimkynni Kentára voru í hinu hrikalega Þessalíulandi, einu af þrettán héruðum Grikklands. Þeir voru ósiðlátir, munaðargjarnir og ofbeldishneigðir með víni. Foreldrar þeirra eru Ixíón og Nefele(eða nefos, sem þýðir ský). Það atvikaðist þannig að þegar Ixíón dirfðist að sækjast eftir ástum Heru, konu Seifs, sendi sjálfur þrumuguðinn honum ský sem hann hafði gefið mynd og líki Heru í einu og öllu. Ixíón sá engan mun og gat síðan Kentárana með skýmynd þessari. Kíron hét nafntogaður kentár sem var þekktur fyrir lærdóm og visku og átti samkvæmt ýmsum sögnum að hafa kennt köppum eins og Akkilesi og Herkúlesi.




bottom of page