
Kynjaverur
Urðarboli
Urðarboli er skepna sem býr í þjóðsögum og á að líkjast manni fyrir ofan mitti en seli frá mitti og niður úr. Hún á ekki að hafa gert nokkrum manni mein, en það fylgdi því mikil ógæfa að koma auga á skepnuna. Sögur segja frá því að eitt sinn var maður á Reynisfjalli þegar hann heyrir Urðarboða hljóða ákaflega. Maður þessi fylgir hljóðinu og kemur loks að kvikindinu sem var bæði aumlegt og ljótt. Frá og með þeirri sjón var maðurinn mjög svo lánlítill. Önnur saga segir frá því er maður að nafni Valdemar var á selaveiðum í Skaftafellssýslum. Hann var vanur að senda hundinn út í sjóinn að sækja selina eftir að hafa skotið þá banaskoti. Eitt skiptið synti hundurinn tómhentur til baka og hafði ekki náð að draga selinn í land. Valdemar tekur þá til sinna ráða og ætlar að synda sjálfur eftir dýrinu, en eins og hundurinn kom maðurinn tómhentur til baka og sagði frá því að aldrei skyldi hann synda í þessum sjó aftur að nauðsynjalausu vegna sjóskrímslis sem var bæði ljótt og mikið vexti. Á það að hafa verið Urðarboli.
