top of page

Kynjaverur
Typhon
Typhon var ógnvænlegasta skrímsli grísku goðafræðinnar og var þekktur sem „Faðir allra skrímsla.“ En kona hans Echidna var þekkt sem „Móðir allra skrímsla.“ Typhon var stærstur og hræðilegastur, mannlegur efrilíkaminn teygði sig hátt upp í stjörnurnar og hendurnar teygðu sig austur og vestur. Hann hafði hundruð drekahausa í stað mannshaus, en sumir sögðu þó að hann hefði haft mannshaus en drekahausa í stað fingra. Neðri líkami hans samanstóð af höggormsspírölum sem náðu upp að höfði hans þegar strekkt var úr þeim og gáfu í sífellu frá sér hvissandi hljóð. Líkami hans var þakinn vængjum og eldur blossaði í augum hans, sem vakti jafnvel ótta Ólympíuguðanna.


bottom of page