
Kynjaverur
Álfar
Álfar eru goðsagnakenndar verur sem koma upprunalega úr germanskri-goðafræði og þeim oft lýst sem smáu, ungu og mjög svo fríðu fólki. Þeir eru eins konar guðir náttúru og frjósemi og búa á náttúrulegum stöðum, neðanjarðar eða í vatnsuppsprettum. Sögur af þessum verum sem eiga að byggja jörðina samhliða fólki hafa gengið frá kynslóð til kynslóðar um allan heim í margar aldir. Í goðafræðinni í Snorra-Eddu er sagt frá svokölluðum ljósálfum sem eiga að hafa lifað í himnaríki og að hafa verið fegurri sól sýnum. Í þeirri sögu er einnig sagt frá dökkálfum sem lifa undir yfirborði jarðar en þeir voru illa innrættar verur. Í hinum ýmsu sögum er að finna lýsingar á álfum og til eru margar ólíkar sögur af ólíkum álfum með mismunandi tilgang, þó hann sé yfirleitt að varðveita góða náttúru.




