top of page

Varúlfar

Neuri varúlfar er ein elsta frásögn varúlfa, það var sagnfræðingurinn Herodotus sem lifði á árunum 484 fyrir Krist og það var 425 fyrir Krist sem skrifaði um þá þótt hann tæki það skýrt fram að hann tryði ekki sjálfur á þá . Þessar frásagnir komu frá Póllandi. Þessar frásagnir ferðuðust víða um Evrópu en ekki til Íslands, alla vega er varúlfa ekki getið í Íslendingasögunum. Löngu síðar voru sett lög í Frakklandi árið 1573 um útrýmingu varúlfa í Franche-Comté héraðinu.

 

Varúlfur er oftast karlmaður sem umbreytist í úlf á fullu tungli, í sumum sögnum gera þeir það af fúsum og frjálsum vilja en í öðrum ekki. Þegar hann hefur umbreyst sér í úlf hefur hann eignast alla eiginleika úlfsins svo sem mikinn styrk, hraða og svengd í mannakjöt. Til þess að drepa þá þarf að skjóta þá með silfurkúlum, þá umbreytast þeir aftur í menn. Sumir varúlfar umbreytast aðeins á fullu tungli aðrir á sjö ára fresti, enn aðrir umbreytast í sjö ár og aldrei aftur eftir það.

 

Varúlfar urðu til með margvísilegum hætti, ef maður er bitinn af varúlfi þá breytist maður í varúlf, sumir varúlfar urðu til af því að Guð var að refsa þeim fyrir að vera ekki hliðhollir kristniboði heilags Patreks. Það eru margar kenningar um það og er það gífurlega misjafnt, sumir varúlfar áttu að verða til vegna þess að  menn drukku rigningarvatn úr fótspori dýrs. En jafnan þá er það erfðatengt eða maður sem hefur verið bitinn af varúlfi.

Varúlfar hafa alltaf verið taldir náttúrulegir óvinir vampíra, þeir eru víða þekktir í ýmsum bókum og myndum.   

KYNJAVERUR

© 2014 by María Ármann, Maria Nathalie Mai, Sunneva Líf Albertsdóttir & Anna Margrét Stefansdóttir 

Let’s Connect
  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Google+ Basic Black
bottom of page