top of page

Alltaf eru einstaklinar sem virðast ekki finna fyrir neins konar yfirnáttúrulegum öflum í kring um sig og trúa ekki á neitt slíkt. En alls staðar er þó útbreidd trú á einhver öfl, máttarvöld, guði eða anda sem hafa áhrif á líf manna og gang náttúrunnar, og í öllum samfélögum fer fram dýrkun máttarvalda með einhverjum hætti. Hvarvetna sem þessi fyrirbæri hafa verið skoðuð eru talin vera tengsl milli atferlis manna og afdrifa þeirra í þessu lífi eða í hugsanlegum heimi eftir líkamsdauðann.
            Hugmyndirnar eru mismunandi eftir menningarhópum, en grunnhugmyndirnar eru þó alltaf hinar sömu. Þessi öfl hafa áhrif á líf fólks, hvort sem um er að ræða bein áhrif eða óbein áhrif. Bein áhrif tengjast þá hugmyndum um að beint samband sé milli hegðunar einstaklingsins og afdrifa hans í lífi og dauða, eða í hugsanlegri framhaldstilveru. En óbein áhrif eru hins vegar þau sem rekja má til áhrifa máttarvalda á náttúruna og samfélagið í heild. Illviðri, óáran, uppskerubrestur, slys, sjúkdómar í mönnum og skepnum svo örfá dæmi séu talin, eru oft talin vera refsing máttarvalda fyrir yfirsjónir í samfélaginu eða þá að illvilji þeirra einn sé að verki.
            Bænir og ákall, fórnir og töfrar eru meðal þess sem gripið er til í viðleitni manna til að halda góðu sambandi við guði og anda. Mannkynið reynir eftir bestu getu að koma í veg fyrir refsingu guðanna, en þeir eru taldi vera  óvinsamlegir mannkyninu og refsa því ekki aðeins vegna afbrota, heldur einnig á nokkurs tilefnis.
            Mjög snemma á ritöld voru festar á leirtöflur og papýrus frásagnir af guðum sem skapað hafi heiminn og allt sem í honum er, meðal annars mannkynið. En enginn veit hvenær mannkynið fór að gera sér hugmyndir um yfirnáttúruleg og ósýnileg öfl. Í Mesópótamíu voru skrifaðar sköpunarsögur þar sem segir að guðirnir hafi þreyst á að halda veröldinni við og  að þeir hafi skapað mannkynið til að létta sér störfin. Hlutverk mannsins er því að aðstoða guðina við að hafa allt í röð og reglu í veröldinni, enda er oft talað um að mönnum beri að fara vel með og vernda þá náttúru sem þeim hafi verið trúað fyrir.
            Það er ekki mikið vitað um það hvernig trúarbrögð verða til, en rómverskur heimspekingur sagði að óttinn hefði skapað guðina og margir telja að náttúruleg fyrirbæri eins og þrumur og eldingar, ofviðri, skógareldar, eldgos og óskiljanlegar hörmungar hafi vakið menn til umhugsunar um hvað slíku valdi og lausnin verið sú að gera ráð fyrir ósýnilegum öflum sem yllu þessum fyrirbærum. Kannski hefur fólk bara einfaldlega þörf fyrir að trúa eða ímynda sér að eitthvað óútskýranlegt og yfirnáttúrulegt sé til, eitthvað verndandi sem hjálpar því að sofna og komast í gegnum erfið tímabil, eða eitthvað ógnvekjandi og aðlaðandi sem gerir tilveruna meira spennandi.

Áhrif sem kynjaverur hafa haft á trú mannsins

KYNJAVERUR

© 2014 by María Ármann, Maria Nathalie Mai, Sunneva Líf Albertsdóttir & Anna Margrét Stefansdóttir 

Let’s Connect
  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Google+ Basic Black
bottom of page