top of page

Naddi

Á milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar yfir Njarðvíkurskriður lá þjóðvegur sem óvættur einn bjó við. Óvætturinn kallaðist Naddi og var í mannslíki að efri hluta en skepna að neðan sem lagðist oft fyrir veginn og varð mörgum mönnum að bana. Hann á að hafa búið í gili norðan megin við skriðurnar sem fékk nafnið Naddagil. Að hausti og vetri til heyrðist einsog eitthvað væri að nadda í grjótinu og af því fékk óvætturinn nafn sitt.
        Sögur segja frá því er Jón Bjarnason ákvað síðla kvölds að halda af stað frá Borgarfirði til Njarðvíkur. Menn báðu hann um að bíða morguns en hann kvað sig mundi ekki saka og hélt af stað. Á leiðinni lenti hann í átökum við Nadda og eftir mikil átök sló niður ljósgeisla eins og eldingu á milli þeirra við það hrökk Naddinn við og flýði til sjós. Jón komst til bæjar illa skaðaður og var rúmfastur í mánuð eftir atvikið. Lengi eftir hélst sá siður að menn skyldu fara með bænir sínar við krossmark sem var komið fyrir á þessum slóðum. Faðirvorið var rist í krossmarkið á latínu.

KYNJAVERUR

© 2014 by María Ármann, Maria Nathalie Mai, Sunneva Líf Albertsdóttir & Anna Margrét Stefansdóttir 

Let’s Connect
  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Google+ Basic Black
bottom of page