top of page

Marbendill

Marbendillinn er einnig þekktur sem marmennið, en samkvæmt þjóðsögunum er það ekki annað en maður sem lifir í vatni.  Hann á það allt sameiginlegt með mönnum, nema hvað að hann getur lifað bæði á landi og í vatni. Sumir hafa þó sérstakar hugmyndir um útlit marbendla, og þá má meðal annars nefna að í sögu á 17.öld kom fram marbendill sem hafði óvenju stórt höfuð og langar hendur og líktist helst seli frá mitti og niður úr. Marbendlar lifa á hafsbotni og koma sjaldan sem aldrei upp á yfirborðið nema þá að þeir hafi verið dregnir á færi. Háttsemi marbendla hefur ekki verið vel þekkt, en þó er nokkuð sem menn vita. Þeir heita mennskum nöfnum og kvendýrin eru mjög lagin í höndunum. Marbendlar sjá um búskap sinn á hafsbotni og eiga góðar kýr. Kýrnar eru ólíkar þeim sem við þekkjum og eru sægrænar að lit og hafa blöðru á milli nasanna eða framan á grönunum. Stundum kemur það fyrir að heil hjörð slíkra kúa komi á land og þá yfirleitt bóndi með þeim sem reynir að reka þær aftur niður á hafsbotn. Ef blaðran þeirra er hins vegar sprengd gerist það eins og hjá Nykrum að þær komast ekki aftur til heimkynna sinna og verða fastar á landi. Það hentar hins vegar mönnum vel þar sem þær eru góðar mjólkurkýr. Marbendlarnir eru fáorðir og sinna mönnum lítið sem ekkert, en þó eru þeir mjög vitrir og vita fyrir ókomin tíðindi og leynda hluti. Í flestum sögum má lesa úr að marbendlar vilji vel og ætla ekki að gera neinum mein, að því undanskildu að þeir eiga það til að leysa öngla af færum fiskimanna, nema að hnúturinn liggi í kross, og gefur það í skyn að marbendlar séu illa kristnir. Á 17. og 18. öld trúðu menn grimmt á marbendla, en undir lok 18. aldrar var trúin á marbendla nánast með fullu horfin. 

 

KYNJAVERUR

© 2014 by María Ármann, Maria Nathalie Mai, Sunneva Líf Albertsdóttir & Anna Margrét Stefansdóttir 

Let’s Connect
  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Google+ Basic Black
bottom of page