top of page

Þegar við fengum að vita þemað í lokaverkefninu höfðum við ekki hugmynd um hvað orðið „deigla“ þýddi, ekki fyrr en kennararnir fóru að útskýra fyrir okkur eins konar samruna og þá var fyrsta hugmynd okkar að vinna með getnað, og búa til risastóra píku sem fólk gæti fæðst úr. Eftir nánari umhugsun fannst okkur það heldur týpískur samruni, og vildum gera eitthvað aðeins frumlegra. Þá datt okkur það snjallræði í hug að skrifa um dýr sem orðið hafa til úr tveimur eða fleiri mismunandi dýrategundum, eins og t.d. hesturinn sem við höfðum nýlega lesið um sem er afkvæmi bæði asna og sebrahests. Okkur þótti það of einhæft, því það eru ekki mjög mörg svoleiðis dýr í heiminum sem gaman væri að fjalla um og enginn nennir að hlusta á fyrirlestur um blandaðar hundategundir. Þá fórum við að velta þessu meira fyrir okkur og ákváðum að blanda óraunveruleikanum við raunveruleikann. Við ætluðum þá að fjalla um dýrategundir sem blandast saman í raunveruleikanum, en einnig í ævintýrum og þjóðsögum. Þá datt okkur í hug að búa til okkar eigið dýr sem væri samsett úr mörgum dýrategundum, og þá m.a. fíl, gíraffa, fugli og fiski. Við hófum vinnuna á dýrinu, þó við værum í rauninni ekki alveg búnar að staðfesta umfjöllunarefni okkar. Því næst fórum við að pæla ennþá meira í þessu, og vildum hafa þetta aðeins meira rannsóknarverkefni og búa til einhverja flotta og áhugaverða rannsóknarspurningu. Þá datt okkur í hug að fjalla líka um þá deiglu hvernig ýmsar kynjaverur hafa haft áhrif á heiminn, trú manna og hugsanir. Okkur fannst þá of mikið að fjalla líka um dýr í raunveruleikanum og það þá komið of mikið út fyrir efnið. Við komumst því loks að niðurstöðu og ákváðum að hafa tvær deiglur í verkefninu okkar, aðra tengda samruna dýra í ævintýrum, goðsögnum og þjóðsögum, og hina tengda áhrifunum sem þau hafa haft á heiminn.
            Það kom okkur á óvart hversu vel við unnum skúlptúrinn og komum hugmyndunum frá okkur eins og við höfðum hugsað okkur. Það kom okkur einnig á óvart hversu vel það gekk að setja skepnuna saman. Við eurm mjög stoltar af okkur vegna þess að við gerðum allt á eigin spýtum en þó fengum við efni og áhöld hjá ýmsum aðilum.
            Við lærðum að vera sjálfstæðar í vinnubrögðum og bjarga okkur sjálfar. Einnig fórum við svakalega langt útfyrir okkar þægindaramma, smíðuðum, máluðum, hönnuðum, söguðum  og saumuðum með stoppunálum. Í fyrstu gekk okkur ekki mjög vel með vængina. Við ákvöðum að treysta ekki á kennana og fara eftir okkar eigin eðlishvötum sem var ekki mjög sniðugt. Við lentum í þvílíku basli en svo að lokum gáfumst við upp og hlustðum á kennarana og urðum mjög sáttar við útkomuna.

 

Um okkur

KYNJAVERUR

© 2014 by María Ármann, Maria Nathalie Mai, Sunneva Líf Albertsdóttir & Anna Margrét Stefansdóttir 

Let’s Connect
  • Facebook Basic Black
  • Twitter Basic Black
  • Google+ Basic Black
bottom of page